Fréttir
Jökulsárlón árið um kring
Bókaútgáfan Opna hefur gefið út bókina Jökulsárlón – Árið um kring eftir Þorvarð Árnason. Bókin kemur út í fjórum útgáfum; íslenskri, enskri, franskri og þýskri. Myndirnar í bókinni eru ríflega eitt hundrað talsins. Þær eru allar teknar við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi, flestar á um tólf mánaða tímabili frá maí 2009 til apríl 2010, og sýna Lónið því á mismunandi árstímum, frá ólíkum sjónarhornum og við misjöfn veðurskilyrði. Í bókinni er meðal annars að finna fjölmargir myndir af Lóninu í vetarbúningi en þá eru litirnir í jökunum sterkastir og margbreytilegastir. Bókin er innbundin og 128 bls. að stærð. Hún verður fáanleg í helstu bókabúðum landsins og einnig hjá ýmsum söluaðilum á Hornafirði.
Þorvarður Árnason hefur búið á Höfn í Hornafirði frá árinu 2006. Hann er doktor í umhverfisfræðum og einnig líffræðingur og kvikmyndagerðarmaður að mennt. Þorvarður er forstöðumaður Fræðasetursins á Hornafirði og jafnframt sérfræðingur í umhverfismálum við Háskóla Íslands. Þorvarður hefur fengist við ljósmyndun og kvikmyndagerð um þriggja áratuga skeið, þegar tækifæri hefur gefist frá öðrum störfum. Hann hefur haldið þrjár einkasýningar á ljósmyndum og einnig gert nokkrar stuttmyndir.
Myndin er af einni af Jökulsárslónsmyndum Þorvarðs Árnasonar í bókinni.
Einkunn
Tengt lesefni:
Bækur: Náttúran [17]
Fyrirtæki: Útgáfa [23]
Landið: Landslag [10]
Grænar síður:
Útgáfa [7]
Landslag [3]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:















