Fréttir
Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
Allar náttúruauðlindir Íslands eiga að vera í almannaeigu og allur arður af þeim á að ganga óskiptur til þjóðarinnar - er fundarefni borgarafundar sem Attac* samtökin hafa boðað til í Iðnó annað kvöld, 28. júli frá kl. 20:00 - 22:00
Fundarstjóri er Benedikt Erlingsson, leikari.
Frumælendur eru Björk Sigurgeirsdóttir viðskiptafræðingur, Jón Þórisson arkitekt og Sigmundur Einarsson jarðfræðingur.
Í pallborði verða þau Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra (óstaðfest), Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra (óstaðfest) og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra (óstaðfest).
Auk þeirra hefur Maria Elvira Méndez Pinedo doktor í Evrópurétti og öllum þingmönnum verið boðið í pallborð.
Fundargestir eru hvattir til að mæta með tilbúnar og gagnorðar spurningar.
Sýnum samstöðu og fjölmennum á fundinn!
*Attac samtökin á Íslandi voru stofnuð formlega þann 8. nóvember 2009. Upphaflegt stefnumið Attac var aðeins eitt, en það var að krefjast þess að svokallaður Tobin-skattur yrði lagður á gjaldeyrisbrask. Attac vinnur nú að fjölda málefna sem tengjast hnattvæðingu og neikvæðum afleiðingum fjárhagslegrar hnattvæðingar og einkavæðingar, en samtökin líta ekki á sig sem andstæðing hnattvæðingar. Þau gagnrýna hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar sem samtökin líta svo á að stýri efnahagslegri hnattvæðingu.
Attac er skammstöfun og stendur fyrir „Association pour la taxation des transactions financières pour l'aide aux citoyens“ sem er á ensku: Association for the Taxation of Financial Transactions for the Aid of Citizens, ATTAC.
Grafík: Yfirlitsmynd af vef Magma um áform fyrirtækisins um að verða stórfyrirtæki í vistvænni orkuframleiðslu. HS Orka er langstærsta verkfnið (blái liturinn í súluritinu) en fyrirtækið áformar að gjörnýta orku á Reykjanesi (áformað að virkja 430 MW til 2016) jafnvel þó að stækkun Reykjanesvirkunar sé í uppnámi því Orkustofnun hefur ekki viljað samþykkja stækkunina. Ástæðan er nær örugglega sú að jarðhitasvæðið er nú þegar fullvirkjað og trúlega gott betur (5% yfir þolmörkum). Allt tal um næga orku á svæðinu er byggt á blekkingum og bjartsýni sem ekkert hefur að gera með raunveruleikann og því síður með sjálfbæra nýtingu eins og fyrirtækið Magma vill láta í veðri vaka að það standi fyrir. Sjá nánar í grein Sigmundar Einarssonar „Pólitísk íhlutun Magma og Norðuráls“.
Tengdir viðburðir
Borgarafundur um Magma
28. júl. 2010 20:00
27. júl. 2010 14:24
Uppruni: Attac samtökin / Náttúran.is
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Dagatal
- Samfélagið
- Viðburðir
Orð í belg
Tengt lesefni:
Dagatal: Viðburðadagatal [348]
Samfélagið: Umhverfismál [939]
Samfélagið: Viðburðir [178]
Viðburðir: Fundir og ráðstefnur [415]
Grænar síður:
Umhverfismál [25]
Viðburðir [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina
Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er búist við hríðarveðri frá því seint í kvöld og nótt, en slyddu og rigningu í byggð - og eins norðanlands með morgninum. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og hviðum allt að 30-35 m/s.Færð og aðstæður
Hálkublettir eru víða á Suðurlandi. Snjóþekja er á Lyngdalsheiði.Hálka eða hálkublettir eru víða á Vesturlandi en á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja víðast hvar. Steingrímsfjarðarheiði er þungfær og ófært er yfir Þröskulda. Þæfingsfærð er bæði á Klettshálsi og Ennishálsi.
Það er hálka í Vestur-Húnavatnssýslu en annars eru aðalleiðir á Norðurlandi að miklu leyti auðar, helst að hálkublettir séu á fjallvegum.
Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en vegir á Austurlandi og Suðausturlandi eru víðast hvar auðir. Hálkublettir eru á Öxi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/
















Guðrún Tryggvadóttir - þriðjudagur 27. júlí, 2010 klukkan 15:08:45
„Lausn komin á Magma-málið segir á visir.is“ reyndar bara tilkynning um að tilkynna eigi um „lausn“ í dag: http://www.visir.is/lausn-komin-a-magma-malid/article/2010504507922.
Guðrún Tryggvadóttir - miðvikudagur 28. júlí, 2010 klukkan 23:49:32
Skoðanakönnun Capacent/Gallup leiðir í ljós að 85% eru á móti því og 60% mjög mikið á móti því að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir?" http://www.dv.is/blogg/eimreidin/2010/7/28/nidurstada-ur-capacent-konnun/
Gunna Tryggva - fimmtudagur 29. júlí, 2010 klukkan 08:22:50
Sömu gömlu aðferðirnar. Fjárfesta áður en leyfi er fengið. Leyfi sem mun ekki fást þar sem þegar hefur verið ofnýtt. Í Fréttablaðinu í dag segir: „Júlíus Jónasson, forstjóri HS Orku, segir í Fréttablaðinu að fáist leyfi til að stækka virkjunina þurfi að bora sex til átta borholur á virkjanasvæðinu til að nýta hverfilinn.“ Sjá einnig á Eyjunni: http://eyjan.is/2010/07/29/fjarfesting-hs-orku-upp-a-tvo-milljarda-i-uppnami-ef-magma-faer-ekki-ad-kaupa/