Fréttir
Magn svifs minnkar
Magn svifs í hafinu minnkar um 1% á hverju ári. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem birt var í vísindaritinum Nature. Svif er samheiti yfir ýmis konar dýr og plöntur sem eru örsmá og rekur fyrir straumum í hafinu. Svif er neðsti hlekkurinn í fæðukeðju sjávar og undirstaða alls lífs í hafinu, enda nærist fjöldi stærri tegunda eingöngu á svifi.
Vísindamenn við Dalhouse háskóla í Kanada rannsökuðu magn svifs í hafinu undanfarin ár en skoðuðu líka gögn allt aftur til ársins 1899. Þeir segja loftslagsbreytingar eina meginorsök þess að svifmagn minnkar eins mikið og raun ber vitni. Áhrif þessa eru umtalsverð því auk þess að vera undirstaða alls lífs í hafinu gegnir svif mikilvægu hlutverki við framleiðslu súrefnis í lofthjúpi jarðar.
Mynd frá Breiðafirði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Einkunn
- Loftslagsbreytingar
- Náttúran
- Umhverfið
Tengt lesefni:
Loftslagsbreytingar: Hlýnun jarðar [31]
Náttúran: Líffræði [15]
Náttúran: Líffræðilegur fjölbreytileiki [13]
Umhverfið: Alþjóðleg umhverfismál [276]
Grænar síður:
Loftslagsbreytingar: Hlýnun jarðar [6]
Náttúran: Líffræði [1]
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:
















