Fréttir
Krukkur fyrir berjauppskeruna
Þrátt fyrir að hafa safnað krukkum frá því snemma í vor virðist aldrei vera til nóg af góðum og fallegum glerkrukkum þegar kemur að því að sulta og sjóða niður að hausti. Verslanir nýta sér þessa óforsjálni okkar mannanna barna og selja tómar glerkrukkur á uppsprengdu verði frá og með ágústbyrjun. Pirrandi að vera boðið upp á að kaupa tómar krukkur á sama verði og stútfullar sultukrukkur í verslunum.
Til að klekkja á óprúttnum verslunareigendum dugir ekkert annað en útsjónarsemi og dugnaður. Sníkja krukkur hér og þar og hreinsa þær vel að fyrri tíðar sið. Sumir leggja mikið uppúr því að merkja krukkurnar og skreyta en aðrir láta nægja að þekkja innihaldið af útlitinu. Helga Sigurðardóttir skrifaði um hreinsun á krukkum og hreinsun á flöskum sem nauðsynlegt er að kynna sér. Hildur Hákonardóttir hefur aðrar hugmyndir um krukkuhreinsun og tekur þessu ekki eins alvarlega og Helga enda skapandi sála sem er alltaf að prófa eitthvað nýtt. Mikilvægast er að ítrasta hreinlætis sé gætt og vel hreinsaðar brennheitar krukkur séu fylltar af brennheitri sultunni og lokað strax. Gott hefur reynst að lauma frekar grein af fjallagrasagrein til rotvarnar með í krukkuna en að sótthreinsa svo mikið að bragð verði af.
Ef þú slærð inn leitarorðið „krukkur“ hér í leitarretinn hjá Voffa koma upp greinar sem fjalla um ýmislegt sem viðkemur geymslu í krukkum og svo má prufa önnur leitarorð fyrir uppskriftir til að fá hugmyndir af því hvernig hægt er að koma sér upp vetrarforða af gæðum jarðar. Gaman væri að fá uppskriftir og góð ráð frá lesendum varðandi niðursuðuna senda á nature@nature.is.
Einkunn
- Eldhúsið
- Grasagudda
- Næring
Orð í belg
Tengt lesefni:
Eldhúsið: Matvælageymsla [31]
Grasagudda: Í pottinum [118]
Næring: Uppskriftir [144]
Næring: Öryggi matvæla [42]
Grænar síður:
Öryggi matvæla [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
















Guðmundur - miðvikudagur 14. desember, 2011 klukkan 19:41:26
Hvar fær maður keypt krukkur. Fann ekki meira en einhverjar rándýrar í ikea og rúmfatalagernum...
Guðrún Tryggvadóttir - miðvikudagur 14. desember, 2011 klukkan 22:18:48
Best er að safna sjálfur krukkum því þær eru gríðarlega dýrar ef að maður þarf að kaupa þær tómar.