Fréttir
Endurvinnsla sparpera
Endurvinnsla sparpera (Compact Fluorescent Lamp integrated– CFLi)
Hvernig á að farga sparperum að líftíma þeirra loknum?
Aðrar reglur gilda um perurnar en venjulegt heimilissorp og því má ekki fara með þær sem slíkt. Þess í stað þarf að fara með þær á endurvinnslustöðvar til förgunar. Vinsamlegast komið aftur með perurnar í IKEA verslunina til endurvinnslu eða kynnið ykkur endurvinnslumöguleika í ykkar sveitarfélagi.
Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir mig sem viðskiptavin?
Með því að tryggja að sparperum sé fargað eða þær endurunnar á réttan hátt, hjálpar þú til við að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á umhverfið og heilsu manna. Sparperur innihalda kvikasilfur sem getur haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi ef það er losað út í umhverfið. Förgun verður að vera í samræmi við umhverfisreglugerðir á hverjum stað.
Hvernig get ég vitað hvort henda má sparperum með heimilissorpi eða hvort þeim þurfi að skila til endurvinnslu?
Rétt eins og allur rafmagns- og rafeindabúnaður sem IKEA selur, eru sparperurnar með tákni sem sýnir ruslatunnu á hjólum sem búið er að krossa yfir. Þetta er evrópskt tákn úr WEEE-tilskipuninni sem þýðir að afhenda þarf vöruna til endurvinnslu að líftíma hennar loknum (WEEE stendur fyrir Waste of Electric and Electronic Equipment).

Hvað verður um sparperur sem skilað er til IKEA?
Samþykktir endurvinnsluaðilar, sem eru sérfræðingar í endurvinnslu, sjá um sparperurnar. Yfirleitt eru 80% efnisins í perunni nýtt við endurvinnslu (málmur, gler og kvikasilfur). Hin 20% eru að mestu plast sem oftast er notað til orkuframleiðslu. Mjög lítill hluti peranna verður afgangs.
Ef peran brotnar
Ef köld pera brotnar lekur dálítið af kvikasilfri út úr henni í dropum sem dreifast um svæðið. Droparnir eru nokkuð fljótir að detta á gólfið með brotum úr perunni, t.d. glerbrotum. Ef heit pera brotnar fer gas- og málmkennt kvikasilfur út í andrúmsloftið.
Hvað á að gera ef köld pera brotnar?
Safnaðu saman brotum úr perunni með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Hvað á að gera ef heit pera brotnar?
Lokaðu dyrunum að herberginu þar sem peran brotnaði. Loftræstu herbergið (með því að opna glugga) og yfirgefðu það. ELC (The European Lamp Companies Federation) mælir með því að herbergið sé tómt í 20-30 mínútur.
Safnaðu síðan saman brotum úr perunni, með stífum pappír eða pappa og settu þau í glerkrukku með loki. Þurrkaðu síðan gólfið og fleti nálægt brotnu perunni með litlum rökum klút. Settu klútinn í glerkrukkuna, lokaðu henni og merktu, t.d. með textanum „gæti innihaldið kvikasilfur úr sparperu“. Farðu með krukkuna á endurvinnslustöð sem tekur á móti úrgangi sem er hættulegur umhverfinu.
Notið ekki ryksugu því hún getur stuðlað að uppgufun kvikasilfursdropanna og dreift þeim um loftið. Það veldur aukinni hættu á innöndun.
Heimild: Sænska eiturefnastöðin. Efni birt þýtt á vef IKEA.
1. sep. 2010 16:41
Uppruni: IKEA á Íslandi
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Endurvinnsla
- Mengun
- Orka
- Umhverfið
- Öryggi og vá
Tengt lesefni:
Endurvinnsla : Rafeindatæki [31]
Endurvinnsla : Spilliefni [10]
Endurvinnsla : Ýmislegt [66]
Endurvinnsla : Þjónusta [38]
Mengun: Eiturefni [98]
Orka: Ljósaperur [8]
Umhverfið: Öryggi og vá [90]
Öryggi og vá: Hættuleg efni [117]
Öryggi og vá: Þungmálmar [14]
Grænar síður:
Rafeindatæki [10]
Spilliefni [10]
Ýmislegt [23]
Þjónusta [27]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Ábendingar frá veðurfræðingi
Um og upp úr miðjum degi hvessir af vestri, fyrst sunnan- og suðvestanlands. Þá éljagangur og vaxandi hálka af þeirra völdum með kvöldinu um allt vestanvert landið. Í Mýrdal, einkum við Reynisfjall, má gera ráð fyrir vindhviðum allt að 30-40 m/s frá því upp úr hádegi og fram eftir degi.Færð og aðstæður
Á Mosfellsheiði eru hálkublettir en hálka á Lyngdalsheiði. Hálkublettir eru víða í uppsveitum Suðurlands.Á norðanverðu Snæfellsnesi og á Fróðárheiði er snjóþekja en hálkublettir á Vatnaleið. Hálka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en snjóþekja á Laxárdalsheiði og í Svínadal.
Þæfingsfærð og skafrenningur er á Klettshálsi en snjóþekja á Ódrúgs- og Hjallahálsi. Á Steingrímsfjarðarheiði er snjóþekja og él en þæfingsfærð á Þröskuldum. Annars er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Vestfjörðum nema hvað það er snjóþekja frá Súðavík og í Reykjanes.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslum, að mestu autt í Skagafirði en hálkublettir og þoka á Öxnadalsheiði.
Í Eyjafirði er hálka frá Hjalteyrarafleggjara út á Siglufjörð. Hálkublettir eru á Víkurskarði og Fljótsheiði en hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Einnig eru hálkublettir á Sandvíkurheiði, Hófaskarði og á Hálsum. Flughált er á Hólasandi.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi er allar helstu leiðir greiðfærar.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli. Þetta á einnig við um Norðfjarðarveg og Vattarnesveg frá kl 10, laugardaginn 4. febrúar.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Tenging rofin
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















