
Í anda hægrar matarmenningar (Slow food):

Beint frá býli
Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.
Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

EarthCheck Assessed
EarthCheck (áður Green Globe) er viðmiðunar-og vottunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er byggt á Dagskrá 21 og gefur fyrirtækjum og samfélögum tækifæri á að vinna á markvissan hátt að umhverfismálum. EarthCheck leggur áherslu á þá meginþætti tengda umhverfinu, félags- og efnahagsmálum sem hafa mest áhrifa á umhverfið. Fyrirtæki í ferðaþjónusta og samfélög innan EarthCheck eru að finna um allan heim og í helstu greinum innan ferðaþjónustunnar. EarthCheck Assessed er merki þeirra fyrirtækja og og samfélaga sem hafa náð viðmiðum EarthCheck og vinna að vottun.

EarthCheck Certified
EarthCheck (áður Green Globe) er viðmiðunar-og vottunarkerfi sem stuðlar að sjálfbærri ferðaþjónustu. Það er byggt á Dagskrá 21 og gefur fyrirtækjum og samfélögum tækifæri á að vinna á markvissan hátt að umhverfismálum. EarthCheck leggur áherslu á þá meginþætti tengda umhverfinu, félags- og efnahagsmálum sem hafa mest áhrifa á umhverfið. Fyrirtæki í ferðaþjónusta og samfélög innan EarthCheck eru afð finna um allan heim og í helstu greinum innan ferðaþjónustunnar. EarthCheck Certified er merki þeirra fyrirtækja og og samfélaga sem náð hafa EarthCheck fullnaðarvottun.

Frá fyrstu hendi
“Frá fyrstu hendi” og hugtakið “Sveitamatur” eru gæðamerki á matvælum íslenskra sveita, þar sem megin þættir framleiðslunnar byggja á íslensu hráefni og íslenskri framleiðslu. Með íslensku hráefni er átt við hráefni frá landbúnaði, fiskveiðum og nýtingu afurða villtrar náttúru. Með framleiðslu er átt við framleiðslustað, hráefni, starfskrafta, reynslu, þekkingu og sögu- og menningarlegar hefðir.
Einungis félagsmenn í samtökunum Beint frá býli mega nota gæðamerkið “Frá fyrstu hendi” að undangenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum fyrir notkun gæðamerkisins.

Matarklasi Suðurlands - hefðir úr héraði
Matarklasi Suðurlands og Vestmannaeyja hefur það að markmiði að varðveita og hefja til vegs og virðingar hefðir úr héraði í matargerð í anda hinna alþjóðlegu „Slow Food/Hægrar matarmenningar“ samtaka. Með því að nýta hráefni úr næsta nágrenni okkar svo sem unnt er styrkjum við matvælaframleiðslu og aukum fæðuöryggi þjóðarinnar. Það styttir auk þess flutningsleiðir, minnkar mengun og sparar flutningskostnað.

Matur úr Eyjafirði - matur úr héraði
Matur úr Eyjafirði/Matur úr héraði – Local food er félag sem vinnur að framgangi eyfirskrar matarmenningar í víðum skilningi. Verkefnið byggist á hugmyndafræði hægrar matarmenningar - Slow Food og er afrakstur klasasamstarfsi ýmissa aðila í matvælaframleiðslu, veitingarekstri og ferðaþjónustu í Eyjafirði. Merkið er ekki vottun sem slík en auðkennir svæðisbundna framleiðslu og þjónustuframboð þeirra sem taka þátt í verkefninu.

Opinn landbúnaður
Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Vottað lífrænt - Tún
Á Íslandi annast vottunarstöðin Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð án skordýraeiturs og tilbúins áburðar þar sem fylgt er reglugerð Evrópusambandsins um lífræna ræktun. Innan Evrópusambandsins er bannað að kalla vörur lífrænt ræktaðar nema þær uppfylli reglugerð sambandsins. Merkingin metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.
+ Veitingahúsið Lindin- + Slow Food í Reykjavík
+ Gamla Borg
+ Strikið
+ Kaffi Klettur Reykholti
+ Ströndin- + Dill restaurant
+ Reykhúsið Útey
+ KEA Hótel Akureyri
+ Einsi Kaldi
+ Hótel Gullfoss
+ Hótel Geysir
+ Skálholtsskóli
+ Hótel Klaustur
+ Café María
+ Lostæti - list fyrir lyst
+ Árhús
+ Vilberg Kökuhús
+ Hoflandssetrið
+ Hestakráin
+ Rauða húsið
+ Bautinn ehf - La Vita e Bella veitingahús
+ Engimýri Gistihús í Öxnadal
+ Greifinn veitingahús
+ HáGé ehf
+ Halastjarna yfir Hálsi, Veitingahús
+ Bruggsmiðjan - Kaldi
+ Veitingahúsið Café Karólína
+ Efsti-Dalur II
+ Stafnhús ehf. - Gónhóll

+ Garðyrkjustöðin Engi - Grasnytjar ehf
+ Hótel Geirland

+ Holtselsbúið ehf.
+ Hótel Anna, Moldnúpi
+ Hótel Hekla - Ketilhóll ehf
+ Laufás í Eyjafirði
+ Sólheimar
+ Staðurinn-náttúrulega
Náttúran er ehf. tekur enga ábyrgð á afleiðingum sem hlotist geta af röngum upplýsingum.
Tengt lesefni:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Ábendingar frá veðurfræðingi
Um og upp úr miðjum degi hvessir af vestri, fyrst sunnan- og suðvestanlands. Þá éljagangur og vaxandi hálka af þeirra völdum með kvöldinu um allt vestanvert landið. Í Mýrdal, einkum við Reynisfjall, má gera ráð fyrir vindhviðum allt að 30-40 m/s frá því upp úr hádegi og fram eftir degi.Færð og aðstæður
Á Mosfellsheiði eru hálkublettir en hálka á Lyngdalsheiði. Hálkublettir eru víða í uppsveitum Suðurlands.Á norðanverðu Snæfellsnesi og á Fróðárheiði er snjóþekja en hálkublettir á Vatnaleið. Hálka er á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði en snjóþekja á Laxárdalsheiði og í Svínadal.
Þæfingsfærð og skafrenningur er á Klettshálsi en snjóþekja á Ódrúgs- og Hjallahálsi. Á Steingrímsfjarðarheiði er snjóþekja og él en þæfingsfærð á Þröskuldum. Annars er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Vestfjörðum nema hvað það er snjóþekja frá Súðavík og í Reykjanes.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslum, að mestu autt í Skagafirði en hálkublettir og þoka á Öxnadalsheiði.
Í Eyjafirði er hálka frá Hjalteyrarafleggjara út á Siglufjörð. Hálkublettir eru á Víkurskarði og Fljótsheiði en hálka á Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Einnig eru hálkublettir á Sandvíkurheiði, Hófaskarði og á Hálsum. Flughált er á Hólasandi.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi er allar helstu leiðir greiðfærar.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli. Þetta á einnig við um Norðfjarðarveg og Vattarnesveg frá kl 10, laugardaginn 4. febrúar.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Tenging rofin
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/










