Fréttir
Hvað er sanngirnisvottun?
Umræðan um siðgæði í viðskiptum skýtur upp kollinum með reglulegu millibili en þess á milli er ekki mikil umræða um málið og „hagsmunir og kröfur neytenda“ um lágt vöruverð verða samkennd og sanngirnisvitund yfirsterkari. Til að varpa ljósi á það hvað sanngirnisvottanir eru og hver að slíkum vottunum stendur hefur Náttúran tekið saman eftirfarandi efni:
Sanngirnisvottun beinir sjónum að mannréttindum. Með því að kaupa sanngirnisvottaða vörur leggur þú þitt af mörkum til betri lífs fyrir börn og fullorðna í fátækari hlutum heimsins.
- Þú tryggir að vinnufólk og ræktendur fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína.
- Þú vinnur á móti barnaþrælkun
- Þú hvetur til lífrænnar ræktunar
- Þú styður lýðræðisþróun
- Þú vinnur á móti misrétti vegna kyns, húðlitar og trúar
- Þú færð gæðavörur
Þannig virkar sanngirnisvottun:
Smábændur og handverksmenn í vaný róuðum löndum eiga erfitt með að fóta sig á heimsmarkaði. Til þess að hafa aðgang að stórum mörkuðum og selja vörur sínar neyðast bændur oft til að lækka verð, gera litlar kröfur til vinnuumhverfis, til viðbótar því að drjúgur skrefur af hagnaðinum fer til milliliða. Þetta leiðir til þess að margir bændur fá ekki nægilega borgað fyrir vinnu sína og geta þar af leiðandi ekki framfleitt sér og fjölskyldu sinni.
Sanngirnisvottun er nokkurs konar viðskiptasamband framleiðanda, innflytjanda, verslana og neytenda, sem er opið, gagnkvæmt og með virðingu fyrir öllum hlutaðeigendum. Sanngirnisvottun eru ekki styrkir eða niðurgreiðsla til bænda heldur trygging fyrir sanngjörnum greiðslum, öruggu vinnuumhverfi, framýróun, virðingu fyrir mannréttindum og umhverfinu sem er undirstaða tryggrar efnahagslegrar og félagslegrar þróunar.
-
Vöruflokkar: Bananar, kakó, hrásykur, kaffi, te, mangó, hunang, appelsínur, fótboltar, textílvörur og djús.
-
Alþjóðlegt merki sanngirnisvottunar gengur undir ýmsum nöfnum (fer eftir þjóðum) Max Havelaar/ Fair Trade/Transfair. Merkið er eitt og hið sama og er veitt með leyfi the international fairtrade organization, sem eru alþjóðleg samtök sanngirnisvottunar.
Fair Trade Labelling Organizations International (FLO) er alþjóðlegur úttektaraðili merkisins. Úttekt fer fram árlega, jafnvel oftar ef þörf krefur. Til viðbótar eru gerðar ársfjórðungssamantektir á verslun með sanngirnisvottaðar vörur.
-
Rapunzel hefur lengi boðið upp á lífrænt ræktaðar vörur og hefur í samstarfi við The Institute for Marketecology (IMO), alþjóðlega vottunarstofu þróað eigin sanngirnisvottun, Hand in hand. Rapunzel er dæmi um fyrirtæki sem valið hefur þá leið að vera með er eigin merki, bæði lífrænt ræktað og sanngirnisvottað. Vörur sem merktar eru Hand in hand innihalda amk 50 % hráefni frá Hand in hand ræktendum.
20. okt. 2009 07:29
Uppruni: Náttúran.is
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Fræðsla
- Umhverfið
- Vottun
- - - -
Tengt lesefni:
Fræðsla: Umhverfisfræðsla [171]
Umhverfið: Innkaup og förgun [199]
Umhverfið: Sanngirnisvottun [23]
Vottun: Sanngirnisvottun [34]
: Sanngirnisvottun [7]
Grænar síður:
Umhverfisfræðsla [203]
Innkaup og förgun [2]
Sanngirnisvottun [3]
Sanngirnisvottun [3]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina
Það hvessir af suðri seint í köld og hlýnar heldur. Á hæstu fjallvegum um landið vestanvert er búist við hríðarveðri frá því seint í kvöld og nótt, en slyddu og rigningu í byggð - og eins norðanlands með morgninum. Á norðanverðu Snæfellsnesi er spáð byljóttum vindi í nótt og hviðum allt að 30-35 m/s.Færð og aðstæður
Hálkublettir eru víða á Suðurlandi og sumstaðar hálka. Snjóþekja er á Lyngdalsheiði.Hálka eða hálkublettir eru víða á Vesturlandi en á Vestfjörðum er hálka eða snjóþekja víðast hvar. Steingrímsfjarðarheiði er þungfær og ófært er yfir Þröskulda. Þæfingsfærð er bæði á Klettshálsi og Ennishálsi.
Það er hálka í Vestur-Húnavatnssýslu en annars eru aðalleiðir á Norðurlandi að miklu leyti auðar, helst að hálkublettir séu á fjallvegum.
Hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en vegir á Austurlandi og Suðausturlandi eru víðast hvar auðir. Hálkublettir eru á Öxi.
Þungatakmarkanir
Þungatakmarkanir eru nú víða um land.Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















