Fréttir

Öryggisblað - viðmið

Öryggisblað (safety data sheet) er lögbundið fylgirit efna sem teljast hafa áhrif á heilsu og umhverfi. Þar er m.a. að finna innihaldslýsingu, eiginleika efnisins, meðhöndlun og viðbragðsáætlun.

Fjölmörg efni sem við notum dags daglega eru hættumerkt, valda ertingu, roða, sviða eða eru hættuleg umhverfi og beinlínis eitruð. Forðist óþarfa notkun á efnavöru og þá sérstaklega hættumerktri. Öryggisblöð skulu vera aðgengileg á íslensku.

Á Íslandi eru framleiðendur og innflytjendur efna skyldugir að láta notanda, sem notar efnið í atvinnuskyni, í té öryggisblað sem inniheldur allar helstu upplýsingar um eiginleika efnisins og hvernig skuli bregðast við slysum. Framleiðendur og innflytjendur geta einnig gert öryggisblöðin aðgengileg á netinu. Upplýsingarnar sem eiga að koma fram á blaðinu eru eftirfarandi:

  1. Heiti efnis eða efnavöru og upplýsingar um framleiðanda, innflytjanda eða seljanda
  2. Samsetningu/upplýsingar um innihald
  3. Hættuflokkun
  4. Skyndihjálp
  5. Viðbrögð við eldsvoða
  6. Viðbrögð við efnaleka
  7. Meðhöndlun og geymsla
  8. Takmörkun áverkunar (exposure)/persónuhlífar
  9. Eðlis- og efnafræðilega eiginleika
  10. Stöðugleika og hvarfgirni
  11. Eiturefnafræðilegar upplýsingar
  12. Hættur gagnvart umhverfi
  13. Förgun
  14. Flutningar
  15. Lög og reglugerðir
  16. Aðrar upplýsingar

Innihald öryggisblaða á erindi við alla, óháð því hvort efnin séu notuð í atvinnuskyni eða ekki. Viðbrögð við slysum og skyndihjálp er ekkert örðuvísi fyrir fólk þó svo að efnið hafi verið notað til einkanota. Því er farið fram á að allir framleiðendur/innflytjendur sem yrðu að gera öryggisblöð samkvæmt reglugerð 1027/2005 [um öryggisblöð] óháð því hvort um er að ræða atvinnustarfsemi eða ekki, skrái þau á Náttúran.is þó þau séu til einkanota. Með því er einnig uppfyllt skilyrðin um skrásetningu varúðar og hættusetninga ásamt hættumerkingum samkvæmt reglugerð 236/1990 [um meðferð eiturefna, hættulegra efna og vörutegunda sem innihalda slík efni ásamt áorðnum breytingum], sem farið er fram á undir fyrirsögninni “Hættuleg efni” hér á Náttúran.is.


Grafík: Tákn sem notað er eingöngu hér á vefnum þegar fjallað er um öryggisblöð almennt ©Náttúran.is.




Einkunn

Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Umhverfið: Innkaup og förgun [199]

Umhverfið: Umhverfisviðmið [82]

Umhverfið: Vistvæn innkaupaviðmið [53]

Umhverfið: Öryggisblöð [1]

Öryggi og vá: Öryggisblöð [2]

Grænar síður:

Innkaup og förgun [2]

Umhverfisviðmið [1]

Vistvæn innkaupaviðmið [1]

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
Það er nú ekki eins og landið sé að fjúka burt, gaman væri að vita ...
11. 02. 2012 15:24:
Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:

Fréttir frá: