
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Baðherbergið - Hreinlætisvörur
Hreinlætisvörur
Vistvænar hreinlætisvörur eru til í miklu úrvali og margar þeirra umhverfisvottaðar. Oft er hægt að sleppa hreingerningarefnum við þrif ef notaðir eru örtrefjaklútar og náttúruleg efni eins og edik eða salt. Ofnotkun hreinsiefna er mikil og dýrkeypt fyrir umhverfið. Efnin hverfa ekki þegar þau eru komin í skolpleiðslurnar heldur enda þau í hafinu. Efnin eru áfram virk og geta skaðað lífríkið. Að efni brotni niður í umhverfinu segir ekki allt um hversu fljótt þau gera það og einnig geta niðurbrotsefnin verið skaðlegri en upprunalegu efnin. Öruggast er að forðast notkun óþarfa efna og skammta rétt þegar efna er þörf. Yfirleitt er hægt að helminga ráðlagða skammta hreinsiefna því vatn á íslandi er mun mýkra en t.d víða í Evrópu.
Sjampó og sápur
Sjampó og sápur geta innihaldið bæði tilbúin og náttúruleg efni. Stundum koma náttúrulegu efnin beint úr jurtum, en oft er búið að einangra þau til að fá nákvæmlega þá virkni sem óskað er eftir í vörunni. Skoðaðu vel innihaldsefnin sérstaklega ef þú ert með ofnæmi. Góð regla er að nota eins lítið af sápu og hægt er enda getur ofnotkun aðeins leitt til þess að húðin þornar um of. Sum sjampó innihalda efni eins og vax sem erfitt er að ná úr hársverðinum. Ódýr sjampó eru oft alls ekki góð vara auk þess sem þau eru ódrjúg. Sjampó í góðum gæðaflokki er mun virkara og verðið segir því ekki alla söguna.
Dömubindi
Forðist að kaupa dömubindi þar sem hverju einstöku bindi er pakkað inn í plast. Hreinlætinu ætti að vera fullnægt með ytri umbúðum. Umhverfisvænna er að velja dömubindi og tíðartappa sem eru ekki með plasti og eru unnin úr lífrænni bómull, hafa ekki verið bleikt og/eða eru laus við ilmefni. Hægt er að komast alveg hjá því að nota bindi eða tappa með því að nota margnota gúmmíbikar (Álfabikarinn) úr 100% náttúrulegu gúmmíi.
Barnableiur
Hvert barn notar að meðaltali um 5000 bleiur fyrstu æviárin. Einnota bleiur hafa mjög neikvæð umhverfisáhrif en létta að sjálfsögðu mikið á þvottum og vinnu umannenda barna. Barnsrassinn finnur að öllum líkindum heldur ekki eins mikið fyrir óþægindum og af taubleium. Það er því erfitt að fara fram á það við uppalendur barna að þeir leggi á sig ómælda aukavinnu til að vera umhverfisvænir. Hver og einn verður að ákveða hvort að það sé þess virði eða ekki.
Hægt er að kaupa taubleiur úr lífrænni bómull og góðar bleiubuxur úr lífrænni ull. Einnig eru til lífræn silkiinnlegg í bleiur. Þetta þarf að þvo og þurrka og það skapar mikla vinnu fyrir umönnunaraðila og eykur vatns- og þvottaefniseyðslu.
Ef einnota bleiur verða fyrir valinu er betra að þær séu vistvænar og helst að þær beri umhverfisvottun. Forðist bleiur sem innihalda PVC (vinyl). Gallinn við einnota bleiur er sá að gríðarlegt magn safnast upp og bleiur með kvoðum og geli sem tútna út eru fullar af efnum sem ekki brotna niður í náttúrunni. Til eru umhverfisvottaðar bleiur sem eru gerðar úr niðurbrjótanlegum efnum. Ef neytendur kaupa aðeins umhverfisvænar bleiur sendir það skilaboð til hinna framleiðandanna að bæta sína framleiðslu. Þannig getum við haft bein áhrif á framboðið með vali okkar á hvaða neysluvörum sem er.
Salernispappír
Jarðarbúar nota gríðarlegt magn af salernispappír sem þarf síðan að brotna niður í náttúrunni. Að velja umhverfisvottaðan salernispappír eru í öllum tilfellum betra fyrir lífríkið.
Einkunn
- Baðherbergið
- Bílskúrinn
- Eldhúsið
- Svefnherbergið
- Þvottahúsið
- Hreinlætisvörur
- Húsið
- Húsráð
- Náttúrumarkaður
- Vottað Svanurinn
Orð í belg
Tengt lesefni:
Baðherbergið: Áhöld [15]
Baðherbergið: Heilsuvörur [24]
Baðherbergið: Hreinlætistæki [18]
Baðherbergið: Hreinlætisvörur [24]
Baðherbergið: Húsgögn [16]
Baðherbergið: Lyf [14]
Baðherbergið: Pappírsvörur [14]
Baðherbergið: Salernispappír [14]
Baðherbergið: Skyndihjálp [13]
Baðherbergið: Snyrtivörur [32]
Baðherbergið: Vefnaðarvörur [18]
Bílskúrinn: Hreinlætisvörur [18]
Eldhúsið: Hreinlætisvörur [31]
Svefnherbergið: Hreinlætisvörur [18]
Þvottahúsið: Hreinlætisvörur [17]
Hreinlætisvörur: Bleiur [4]
Hreinlætisvörur: Dömubindi [2]
Hreinlætisvörur: Hárnæring [2]
Hreinlætisvörur: Pappírsvörur [4]
Hreinlætisvörur: Sápa [7]
Hreinlætisvörur: Sjampó [2]
Hreinlætisvörur: Sótthreinsandi vörur [3]
Hreinlætisvörur: Tannkrem [2]
Hreinlætisvörur: Túrtappar [2]
Húsið: Baðherbergið [14]
Húsráð: Baðherbergið [18]
Náttúrumarkaður: Hreinlætisvörur [12]
Vottað Svanurinn: Barna- hreinlætisvörur [3]
Vottað Svanurinn: Pappírs hreinlætisvörur [3]
Grænar síður:
Húsið: Baðherbergið: Áhöld [1]
Húsið: Baðherbergið: Heilsuvörur [5]
Húsið: Baðherbergið: Hreinlætistæki [3]
Húsið: Baðherbergið: Hreinlætisvörur [12]
Húsið: Baðherbergið: Lyf [1]
Húsið: Baðherbergið: Pappírsvörur [7]
Húsið: Baðherbergið: Salernispappír [5]
Húsið: Baðherbergið: Snyrtivörur [8]
Húsið: Baðherbergið: Vefnaðarvörur [2]
Húsið: Bílskúrinn: Hreinlætisvörur [4]
Húsið: Eldhúsið: Hreinlætisvörur [5]
Húsið: Svefnherbergið: Hreinlætisvörur [6]
Húsið: Þvottahúsið: Hreinlætisvörur [8]
Hreinlætisvörur: Bleiur [1]
Hreinlætisvörur: Dömubindi [2]
Hreinlætisvörur: Hárnæring [9]
Hreinlætisvörur: Pappírsvörur [4]
Hreinlætisvörur: Sápa [21]
Hreinlætisvörur: Sjampó [14]
Hreinlætisvörur: Sótthreinsandi vörur [6]
Hreinlætisvörur: Tannkrem [2]
Hreinlætisvörur: Túrtappar [1]
Náttúrumarkaður: Hreinlætisvörur [2]
Vottað Svanurinn: Barna- hreinlætisvörur [3]
Vottað Svanurinn: Pappírs hreinlætisvörur [5]
Nýleg orð í belg
ég hef nú verið að rækta kúrbít úti í garði í sumar og hefur sá ...
Kúrbítur 1. 09. 2010 18:01:
Utanvegaakstur er subbuskapur? Friðun hefur lítið með utanvegaakstur að gera, hann stunda svartir sauðir flestra ...
Björn 27. 08. 2010 09:51:
Friðun kemur í mörgum myndum. Það er örugglega hægt að leyfa veiðar á svæðum sem ...
Einar Bergmundur 19. 08. 2010 23:56:
Gamla fallbyssu nálgunin. Ef markmiðið er að stöðva virkjanaframkvæmdir, þá á að duga að banna ...
Björn 19. 08. 2010 14:12:
Skal ekkert fullyrða um það en greinin er þýdd af vefnum lifeinthefastlane.ca og innihald hennar ...
Móna Róbertsdóttir 19. 08. 2010 09:02:
mér finnst þetta hræðilegt en þetta er ekki american pitbull terrier hundur heldur american bully ...
hundar 19. 08. 2010 02:13:
Trélím sem þynnt er með vatni og penslað létt yfir gæti hentað vel sem varnish ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 08. 2010 19:56:
Hvað notið þið til að úða yfir þurrkuð blóm á kortum, svo þau haldi sér?
Ólafía Margrét Ólafsdóttir 16. 08. 2010 15:13:
Grand Old Aunt Björk: http://grapevine.is/Features/ReadArticle/Bjork-Feature
Guðrún Tryggvadóttir 15. 08. 2010 12:55:

















Guðrún Tryggvadóttir - þriðjudagur 17. febrúar, 2009 klukkan 12:29:13
Allt um, taubleyjur/taubleiur (skrifað á báða vegu!):
natturuleg.is http://natturuleg.net/taubleiur/hvar-fast-taubleiur
isbambus.comhttp://isbambus.com/
kindaknus123.is http://kindaknus.123.is/page/17561/
montrassar http://montrassar.net/
thumalina.is http://www.thumalina.is/verslun/do/voruflokkur/taubleiur
rassalfar.is http://rassalfar.is/
snilldarborn.is http://snilldarborn.com/