
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Barnaherbergið
Umhverfi barnsins þarf að vera öruggt og uppfylla þarfir þess nótt sem dag. Foreldrar eiga það til að fara út í öfgar með skreytingu herbergja litlu englanna sinna. Of mikið af dóti getur kaffært hugmyndaflug barnsins og sett þau í þá stöðu að þurfa sífellt að velja og hafna. Börn þurfa ekki allt þetta dót. Einföld sterk leikföng sem vaxa með barninu gera þau alveg eins ánægð og hleypa hugmyndafluginu lausu.
Litaval í barnaherberginu hefur áhrif á sálarlíf barnsins og val á efnum hefur áhrif á næmni. Herbergi fullt af plastleikföngum og gerviefnum hefur ekki góð áhrif á barnið. Nýlegar rannsóknir hafa t.a.m. leitt í ljós að þalöt (mýkingarefni) í leikföngum séu mjög algeng þrátt fyrir að þau geti haft hormónatruflandi áhrif og þannig verið stórhættuleg börnum.
Ákveðin vakning er að eiga sér stað með efnaumhverfi okkar en málið er flókið og erftitt að halda yfirsýninni. Til að koma efnum úr umferð þurfa neytendur að taka þátt í því að sniðganga vörur og vörumerki sem stefna heilsu barnanna okkar í hættu.
Einkunn
- Barnaherbergið
- Húsið
Orð í belg
Tengt lesefni:
Barnaherbergið: Áhöld [20]
Barnaherbergið: Bækur [22]
Barnaherbergið: Fatnaður og skór [24]
Barnaherbergið: Húsgögn [15]
Barnaherbergið: Leikföng [24]
Barnaherbergið: Vefnaðarvörur [21]
Húsið: Barnaherbergið [26]
Grænar síður:
Áhöld [1]
Bækur [2]
Fatnaður og skór [24]
Húsgögn [1]
Leikföng [2]
Vefnaðarvörur [6]
Barnaherbergið [4]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:
















Sigursteinn - fimmtudagur 9. júní, 2011 klukkan 11:10:57
Mér finnst að leggja megi meiri áherslu á nægjusemi og hóflegt dót í barnaherbergjum. Það eru án efa tengsl á milli athyglisbrests og javnvel ofvirkni og of mikils dótaframboðs sem börn sitja uppi með.
Guðrún Tryggvadóttir - laugardagur 11. júní, 2011 klukkan 09:57:18
Sæll Sigursteinn, ég er alveg sammála þér um það. Ef þú smellir á leikföngin hér á myndinni http://www.natturan.is/husid/1323/ þá sérðu að við ítrekum það aftur og aftur að nútíma leikföng geti í raun gert meiri skaða en gagn, frá hvaða sjónarhorni sem það er skoðað (útfrá umhverfi og heilsu bæði sálar og líkama barnsins).