Fréttir

SólarrafhlaðaLeikföngBarnabækurRitföngHúsgögnHúsgögnleikföngLeikföngleikföngLeikföngLeikföngLeikföngSængurfötSængurfötHúsgögnLeikur & námAfþreyingMyndlistMyndlistMálning
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Barnaherbergið - Sængurföt

Sæng barnsins ætti ekki að vera of þung og ekki of stór. Útöndun og einangrunargildi í ekta dúnsæng (æðadún eða gæsadún) er auðvitað betri en úr gerviefnum og því í flestum tilfellum hollari. Nauðsynlegt er að viðra sængina reglulega og helst láta hreinsa hana eftir þörfum.

Við val á sængurfötum ættum við m.a. að taka tillit til þess að barnið verði ekki fyrir óþarfa áreiti. Myndamunstur sem í raun eru auglýsingar fyrir kvikmyndir og vörur (Barbie, Spiderman o.fl.) eru kannski ekki æskilegust þar sem að barnið hvílist og ætti að fá að vera í friði fyrir áreiti.

Með vefnaðarvörur s.s. rúmföt og fatnað þarf að hafa í huga að mörg litarefni og framleiðsluferli fela í sér að efnið er meðhöndlað með sýruböðum, og eiturefnum af ýmsum gerðum, sumum jafnvel skaðlegum heilsunni. Eins er framleiðslan sjálf oft uppspretta alvarlegra umhverfisáhrifa og heilsutaps fólks. Sum efni eru þó umverfisvænni en önnur.

Bómull er eitt skaðlegasta hráefnið vegna mikillar eiturefnanotkunar við ræktun þess. Fyrir hvert kg. af bómull sem er ræktað þarf um eitt kg. af eiturefnum. Sé hins vegar valin lífrænt ræktuð bómull þá er eiturefnanotkun næstum bönnuð og notkun skaðlegra efna við meðhöndlun efnanna haldið í algeru lágmarki.

Umhverfismerkingar á borð við Svaninn tryggir að framleiðslan hafi verið umhverfisvæn, lífrænar vottanir (fjöldi merkja í umferð um allan heim) gefa til kynna að varan hafi verið framleidd með lífrænum aðferðum. Sanngirnisvottun er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnuna.





Einkunn

Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Barnaherbergið: Áhöld [20]

Barnaherbergið: Bækur [22]

Barnaherbergið: Fatnaður og skór [24]

Barnaherbergið: Húsgögn [15]

Barnaherbergið: Leikföng [24]

Barnaherbergið: Vefnaðarvörur [21]

Fjölskyldan: Barnauppeldi [14]

Húsið: Barnaherbergið [26]

Náttúrumarkaður: Barnavörur [16]

Náttúrumarkaður: Föt og vefnaðarvörur [22]

Umhverfið: Innkaup og förgun [199]

Vottað lífrænt: Vefnaðarvörur [17]

Vottað Svanurinn: Vefnaðarvörur [6]

Vottun: Sanngirnisvottun [34]

Nýleg orð í belg

Viltu vita hvernig þú ekur?
Þetta sniðuga tæki er horfið af síðum Griffin Technology svo líklega hefur það verið blásið ...
Einar Bergmundur 8. 02. 2012 09:35:
Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:

Fréttir frá: