
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Svefnherbergið - Húsgögn
Í svefnherberginu er rúmið í flestum tilfellum það húsgagn sem hefur mesta persónulega þýðingu. Gott rúm hvort sem það er einstaklings- eða hjónarúm þarf að vera bæði sterkt og þægilegt. Gæði dýnunnar skiptir einnig miklu máli.
Hægt er að kaupa Svansmerktar dýnur úr hreinum nátturuefnum sem anda vel og duga heila mannsævi. Gríðarlegt úrval er til að „heilsudýnum“, marglaga dýnum, vatnsdýnum og Tempur-dýnum. Ýmsar skoðanir eru á því hvort að dýnur sem eru aðallega úr gerviefnum geti talist heilsusamlegar og hvort að það ætti ekki að vera ábyrgð framleiðanda að taka við slíkum dýnum til réttrar förgunar eftir að þær eru úr sér gengnar.
Innbú okkar samanstendur af ýmsum efnum bæði úr jurta- og steinaríkinu s.s. viði, málmum, gleri, trefjum úr plöntum, steinefnum og úr gerviefnum allskonar. Það eru aðallega þau sem að við þurfum að vera með augun opin gagnvart. Ekki aðeins getur útgufun ákveðinna efna verið heilsuspillandi heldur geta umhverfisáhrif verið geigvænleg. Yfir 100.000 efni eru notuð í allskyns framleiðslu í heiminum í dag, mörg hver hafa ekki verið rannsökuð nægjanlega áður en þau verða hluti framleiðslu. Eins gildir að það sem er meinlaust í ákveðnu magni getur verið skaðlegt í meira magni eða í sambandi við önnur efni.
Ef við tökum húsgögn úr viði sem dæmi, þá skiptir máli út frá umhverfissjónarmiðum að skógurinn hafi verið ræktaður á sjálfbæran hátt. Húsgögn merkt sem Forest Stewardship Council (FSC) eru örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum. Korkur er talin til þeirra náttúruefna sem er umhverfisvænt, sérstaklega ef hann er endurunnum úr korktöppum. PVC- gólfdúkur getur aftur á móti undir engum kringumstæðum talist heilsusamlegur né umhverfisvænn.
Þegar kaupa á húsgögn í svefnherbergið er ráðlagt að kaupa vandaða og endingargóða vöru. Sem kaupandi hefurðu rétt á að vita hvaðan efnin sem húsgögnin eru gerð úr séu fengin og hvernig og hvar vinnsla fór fram. Athugaðu að áklæði geta innihaldið eiturefni svo og leðurlíki sem getur innihaldið PVC. Það er ekki dónalegt að spyrja spurninga í verslunum. Til að ná fram breytingum á framboði verða neytendur að byrja á að spyrja spurninga og setja fram kröfur, öðruvísi gerist ekkert.
Gömul húsgögn nýtast einnig eftir að þú þarft ekki lengur á þeim að halda engin ástæða til að kasta þeim á haugana. „Góði hirðirinn“ nytjamarkaður Sorpu og líknarfélaga tekur t.a.m. við öllum húsgögnum fegins hendi og selur í versluninni „Góða hirðinum“ eða gefur áfram til bágstaddra. Nytjagáma má finna á öllum endurvinnslustöðvum Sorpu og á sorpstöðvum ýmissa sveitarfélaga. Sorpa tekur við gömlum dýnum í sérstaka gáma en þær eru síðan urðaðar því gormar eyðileggja sorptætara og því er ekki hægt að kurla þær. Gormalausar yfirdýnur og annað sem telst til vefnaðarvöru má setja í gáma merkta Rauða Krossinum sem lætur kurla og nýta efnið.
Einnig má auglýsa húsgögn til sölu og fá fyrir þau pening eða gefa beint til vina og vandamanna. Síðasta úrræðið ætti að vera að kasta þeim á haugana.
Einkunn
- Svefnherbergið
- Bækur
- Húsið
- Húsráð
- Náttúrumarkaður
- Vottun
Tengt lesefni:
Svefnherbergið: Fatnaður og skór [29]
Svefnherbergið: Heilsuvörur [16]
Svefnherbergið: Hreinlætisvörur [19]
Svefnherbergið: Húsgögn [14]
Svefnherbergið: Lýsing [17]
Svefnherbergið: Raftæki [16]
Svefnherbergið: Snyrtivörur [21]
Svefnherbergið: Vefnaðarvörur [22]
Bækur: Svefnherbergið [16]
Húsið: Svefnherbergið [13]
Húsráð: Svefnherbergið [20]
Náttúrumarkaður: Húsgögn og lampar [19]
Vottun: FSC Forest Stewardship Council [11]
Grænar síður:
Fatnaður og skór [23]
Heilsuvörur [3]
Hreinlætisvörur [6]
Húsgögn [1]
Raftæki [1]
Snyrtivörur [8]
Vefnaðarvörur [4]
Svefnherbergið [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:















