Húsið
Skrifstofan

Hvort sem þú vinnur heima hjá þér eða notar skrifstofuna fyrir áhugamálin þá er mikilvægt að skoða hvernig starfsemin þar hefur áhrif á umhverfið. Í raun má heimfæra allt sem tekið er fyrir hér á skrifstofurekstur í fyrirtækjum.
Tölvu- og tækjanotkun skipar stóran sess á skrifstofum. Þó að tölvur séu stórkostleg tæki að flestra mati hefur tölvuframleiðsla geigvænlega neikvæð umhverfisáhrif. Bæði vegna þeirra náttúrauðlinda sem framleiðsla hráefnis í tölvurnar hefur í för með sér, flutnings efnis heimsálfa á milli og síðan framleiðsluferlisins við gerð tölvunnar sjálfrar, en hún orsakar aðra röð af neikvæðum umhverfisáhrifum.
Auk þess getur loft orðið „rafmagnað“ í rými sem mörg raftæki eru í. Þurrt loft og geislun frá skjáum geta haft neikvæð áhrif á heilsuna og því er regluleg loftun mjög mikilvæg. Ein góð planta hreinsar loftið og ætti því að vera staðalbúnaður á hverri skrifstofu.
Orkunotkun getur auðvitað orðið mjög mikil samfara mörgum tækjum sem malla dag og nótt.
Flokkar:
-
Húsráð
Húsið :: Skrifstofan
Tækni
Húsið



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla



















Steinunn Friðgeirsdóttir - föstudagur 23. nóvember, 2007 klukkan 15:39:35
Ég hef áhyggjur af unglingnum mínum sem eins og flestir aðrir unglingar, hefur fullt herbergi af "græjum" inni hjá sér um nætur; farsímann tölvu og hljómfluttningstæki, margir hafa sjónvarp líka. Þótt slökkt sé á flestu nema farsímanum á nóttunni; getur þetta ekki haft heilsuspillandi áhrif? -allt .þetta rafsegulsvið o hvað það nú heitir all saman sem þessu fylgir?
Kveðja Steinunn
Einar Bergmundur - laugardagur 24. nóvember, 2007 klukkan 01:19:19
Það eru kenningar um að rafmagn og raftæki séu ekki æskileg í miklum mæli. Sem dæmi hafa einhverjir gengið þannig frá svefnherbergi sínu að slökkt er á rafmagni til herbergisins á nóttunni.
Hér eru aðilar sem mæla og ráðleggja í þessu sambandi:
http://www.rafheimilid.is/vara.php?numer=193&undir=39
og http://gardar.info/