
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Skrifstofan - Húsgögn
Húsgögn samanstanda af ýmsum efnum bæði úr jurta- og steinaríkin s.s. viði, málmum, gleri, trefjum úr plöntum, steinefnum og úr gerviefnum allskonar. Það eru aðallega þau sem að við þurfum að vera með augun opin gagnvart. Ekki aðeins getur útgufun ákveðinna efna verið heilsuspillandi heldur geta umhverfisáhrif verið geigvænleg. Yfir 100.000 efni eru notuð í allskyns framleiðslu í heiminum í dag, mörg hver hafa ekki verið rannsökuð nægjanlega áður en þau verða hluti framleiðslu. Eins gildir að það sem er meinlaust í ákveðnu magni getur verið skaðlegt í meira magni eða í sambandi við önnur efni.
Ef við tökum húsgögn úr viði sem dæmi, þá skiptir máli út frá umhverfissjónarmiðum að skógurinn hafi verið ræktaður á sjálfbæran hátt. Húsgögn merkt sem Forest Stewardship Council (FSC) eru örugglega ekki úr regnskógarvið heldur úr sjálfbærum skógum. Korkur er talin til þeirra náttúruefna sem er umhverfisvænt, sérstaklega ef hann er endurunnum úr korktöppum. PVC- gólfdúkur getur aftur á móti undir engum kringumstæðum talist heilsusamlegur né umhverfisvænn.
Þegar kaupa á húsgögn í skrifstofuna er ráðlagt að kaupa vandaða og endingargóða vöru. Sem kaupandi hefurðu rétt til að vita hvaðan efnin sem skrifstofuhúsgögnin eru gerð úr eru fengin og hvernig og hvar vinnsla fór fram. Athugaðu að áklæðið getur innihaldið eiturefni svo og leðurlíki sem getur innihaldið PVC. Það er ekki dónalegt að spyrja spurninga í verlsunum. Til að ná fram breytingum á framboði verða neytendur að byrja á að spyrja spurninga og setja fram kröfur, öðruvísi gerist ekkert.
Sjá nánar um hættuleg efni og tilbúin efni.
Einkunn
- Skrifstofan
- Endurvinnsla
- Húsið
- Húsráð
- Náttúrumarkaður
- Vottað Svanurinn
- Vottun
Tengt lesefni:
Skrifstofan: Annað [16]
Skrifstofan: Bækur [21]
Skrifstofan: Geimurinn [18]
Skrifstofan: Húsgögn [18]
Skrifstofan: Pappírsvörur [20]
Skrifstofan: Raftæki [28]
Skrifstofan: Ræstivörur [17]
Skrifstofan: Vefnaðarvörur [18]
Endurvinnsla : Nytjahlutir [10]
Húsið: Skrifstofan [19]
Húsráð: Skrifstofan [16]
Náttúrumarkaður: Húsgögn og lampar [19]
Vottað Svanurinn: Borð-, húsgagna og töfludúkur [4]
Vottun: FSC Forest Stewardship Council [11]
Grænar síður:
Bækur [2]
Pappírsvörur [4]
Raftæki [2]
Nytjahlutir [10]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal

Nýleg orð í belg
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Iðnaðarsalt átti ekki að nota í matvæli: http://vefblod.visir.is/index.php?s=5738&p=125721
úr Fréttablaðinu 17. 01. 2012 09:26:















