Húsið
Iðnaður

Iðnaður er mikilvægur hluti af atvinnulífi hverrar þjóðar. Hann hefur þó margvísleg áhrif á umhverfi og náttúru sem ekki eru öll af hinu góða. Stór iðnfyrirtæki losa t.d. mikið af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið þótt gerðar séu strangar kröfur til mengunarvarna í starfsleyfum.
Umhverfisstjórnun er því mikilvægur þáttur í allri slíkri starfsemi. Gerðar eru kröfur um „grænt bókhald“ hjá slíkum fyrirtækjum auk þess sem mörg þeirra setja sjálfum sér skýr umhverfismarkmið og vinna samkvæmt ítrustu varfærni í umgengni við náttúruna í starfsemi sinni. Tæplega 50 stofnanir og fyrirtæki halda grænt bókhald.
Þetta er þó ekki nándar nærri nógu útbreyddur metnaður. Umhverfisstjórnunarstaðallinn ISO 14001 er t.a.m. á fáum stöðum í heiminum eins lítið notaður og hér á landi. Aðeins 8 fyrirtæki hafa uppfyllt kröfur ISO 14001 til þessa.
Merkja má hve umhverfismeðvituð fyrirtæki eru með því að skoða hvort þau hafi umhverfisvottun, hafi umhverfisstefnu sína aðgengilega og helst á forsíðu heimasíðu sinnar og hvort að fyrirtækið hafi verið verðlaunað af opinberum aðilum fyrir umhverfisstarf sitt. Upplýsingar um þessi atriði er að finna hér á „grænum síðum“ og „í fararbroddi“.
Flokkar:



natturan.is
fréttir
grænar síður
græn kort
í fararbroddi
húsið
ég
dagatal
grasagudda
samfélagið
umhverfið
landið
næring
heilsan
tækni
fræðsla


















