Krakkalýsi 240 ml

Krakkalýsi er bragðlítið og inniheldur A, D og E vítamín og er einnig ríkt af omega-3 fitusýrum. Ein af þeim er DHA fitusýran sem er notuð til að byggja upp heilann og miðtaugakerfið. A og D vítamín eru nauðsynleg krökkum til að tryggja eðliiegan vöxt tanna og beina og stuðla einnig að betri sjón. Lýsi er einnig talið hafa fyrirbyggjandi áhrif gegn ýmsum almennum kvillum s.s. kvefi.

Krakkalýsi er afrakstur þróunarstarfs Lýsi hf. sem unnið var í samráði við börn og foreldra.

Krakkalýsið er bragðminna en venjulegt lýs og í það er bætt E-vítamíni. Lýsið er unnið á sérstakan hátt þannig að magn A- og D-vítamína verður hæfilegt fyrir börn. Í ráðlögðum dagskammti af Krakkalýsi er einnig meira af omega-3 fitusýrum (þ.á.m. DHA) en í venjulegu lýsi. Fjöldi rannsókna hefur rennt stoðum undir að omega-3 fitusýrur hafi margvísleg jákvæð áhrif á vöxt og viðgang ungviðis. DHA fitusýran finnst t.d. í miklu magni í heila og nethimnu augans.

Við geymslu í kæli getur lýsi storknað. Það hefur engin áhrif á gæði vörunnar.

Geymist í kæli eftir opnun.

Ráðlagðir skammtar:
Börn yngri en 5 ára: 1 teskeið (5 ml) á dag.
6 ára og eldri: 1 matskeið (10 ml) á dag.

Þorri Þorskur segir:
Krakkar! Munið að til þess að verða hraust og heilbrigð þurfið þið að borða hollan og góðan mat. Þið verðið líka að vera dugleg að hreyfa ykkur og leika ykkur úti.


Vottun:

Engin vottun skráð

Framleiðandi:

 Lýsi hf

Grænar síður:

  Lýsi hf

Þyngd innihalds:

240 ml

Heildarþyngd:

489g

Hæð: 190mm Breidd: 70mm Dýpt: 40mm




732 ISK

Innihald:

Kaldhreinsað þorskalýsi / Túnfisklýsi / E-vítamín / A vítamín / D vítamín

Söluaðilar:

Náttúran.is

Flokkar:

Förgun innihalds:
Lífrænt heimilssorp
Förgun umbúða:
Gler, postulín og flísarGrenndargámur - grænnGræna tunnanPlastGrenndargámur - blárPappír og umbúðir úr sléttum pappaBláa tunnanEndurvinnslutunnan


til baka

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá: