Rit Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal

Hér birtast fjögur af ritum séra Björns Halldórssonar (f. 1724 d. 1794):

  • Korte beretninger, komu fyrst út í Kaupmannahöfn 1765.
  • Atli kom fyrst út í Hrappsey 1780.
  • Grasnytjar, komu fyrst út í Kaupmannahöfn 1783.
  • Arnbjörg, kom fyrst út í Kaupmannahöfn 1783.

Rit þessi hafa ekki áður verið prentuð með latínuletri og voru því ekki aðgengileg fyrir nútímafólk.

Björn Halldórsson var einn af merkustu fræðimönnum síns tíma, íslenskumaður, náttúrufræðingur, frömuður garðræktar og annarrar jarðyrkju.

Ritin eru búfræði sinnar aldar og eru einar fyrstu leiðbeiningar í ræktun, búnaðar- og heimilsháttum, serm birtust almenningi. Þau eru ómissandi heimildir um grasafræði og grasalækningar, m.a. teknar frá þekktum fræðimönnum evrópskum.

Hér er einnig að finna upphaf landbúnaðarlöggjafar á síðari tímum „nýbýlatilskipunina“ og „þúfnatilskipunina“, sem oft er vitnað til.
Þessi fræði hafa sögulegt gildi fyrir nútímafólk. Þau eru furðu alhliða aldarspegill og sýna við hvað var búið, af hverju var lifað og hvað þótti helst til framfara þegar fyrst var að rofa til í þjóðfélaginu eftir erfiðar aldir.

Megináhersla var lögð á að kenna hinu unga fólki að búa að sínu og nýta hvað eina, sem landið gat gefið, en einnig að rækta og er þar margt til nefnt, sem þá var nýtt og flestum framandi.

Í Atla er ungum bónda kennt hvernig á að búa. Í Arnbjörgu er verðandi húsmóður kennt hvernig á að ala upp börn í guðsótta og góðum siðu, stjórna hjúum á heimili og hvað einkennir æruprýdda dáindiskvinnu.

Það er von Búnaðarfélags Íslands (nú Bændasamtök Íslands) að rit þessi veki enn áhuga fólks, og bændum búfræðingum og öðrum sem láta sig landbúnaðinn og sögu hans nokkru varða, þyki fengur að þessari bók og er þá tilgangi félagsins náð.

Gísli Kristjánsson og Björn Sigfússon bjuggu til prentunar.
Útgefandi: Búnaðarfélag Íslands, Reykjavík 1983.


Vottun:

Engin vottun skráð

Framleiðandi:

 Bændasamtök Íslands


Þyngd innihalds:

777 g

Heildarþyngd:

777g

Hæð: 218mm Breidd: 150mm Dýpt: 35mm




1.800 ISK

Innihald:

Pappír

Söluaðilar:

Náttúran.is
Förgun innihalds:
Grenndargámur - blárBláa tunnanGóði hirðirinnGræna tunnanEndurvinnslutunnanPappír og umbúðir úr sléttum pappa
Förgun umbúða:
Grenndargámur - grænnGræna tunnanEndurvinnslutunnanPlast


til baka

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá: