Beinar aðgerðir og borgaraleg óhlýðni

Höfundur: Sigurður Harðarson.
Útgefandi: Andspyrna útgáfa. Uppsetning: Sigvaldi Ástríðarson.

Prentað af Prentlausnum á endurunnin pappír.

Á baki bókar segir:
Andspyrna við valdbeytingu og óréttlæti er náttúrulegt og eðlilegt ferli í samfélögum manna. Því erum við ekki að berjast fyrir náttúruna þegar við myndum andspyrnuhópa gegn stóriðju, heldur erum við náttúran að svara fyrir sig. Við erum heldur ekki beint að berjast fyrir betra samfélagi þegar við myndum hópa sem verja mannréttindi, heldur erum við samfélag að verja sig.

Bók þessi fjallar um beinar aðgerðir og borgaralega óhlýðni, sem verkfæri þeirra sem vilja hafa áhrif í sínu samfélagi, en hafa hvorki opinber völd né áhuga á þeim.

Hér er meðal annars fjallað um og leitað svara við eftirtöldum atriðum:
Hver er munurinn á friðsamlegum mótmælum, borgaralegri óhlýðni og beinum aðgerðum? Hvernig má stöðva vinnu á afmörkuðum svæðum og gæta eigin öryggis um leið? Hvernig er gott að standa að skipulagi aðgerða og aðgerðahópa. Hvernig geta borgarar myndað þrýstihópa, rannsakað starfsemi fyrirtækja og ef til vill hent rjómatertum í stjórnmálamenn. Er hægt að taka yfir götur og breyta þeim í útivistarsvæði?

Við getum aldrei myndað hið fullkomna samfélag - en það er rétt að reyna hvað maður gerur til þess. 


Vottun:

Engin vottun skráð

Framleiðandi:

 Andspyrna


Þyngd innihalds:

164 g

Heildarþyngd:

164g

Hæð: 210mm Breidd: 148mm Dýpt: 8mm




1.500 ISK

Innihald:

Endurunninn pappír

Söluaðilar:

Náttúran.is

Flokkar:

Förgun innihalds:
Græna tunnanGrenndargámur - blárPappír og umbúðir úr sléttum pappaBláa tunnanEndurvinnslutunnanGóði hirðirinn
Förgun umbúða:
Engar umbúðir


til baka

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá: