Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar

Höfundur: Hildur Hákonardóttir.
 
Blálandsdrottningin hefur líklega borist hingað með frönskum skútum. Hún er ein af mörgum afbrigðum hinnar auðmjúku kartöflu sem hefur verið í öndvegi á borðum Íslendinga alla tuttugustu öldina. Nafn bókarinnar vísar þó einnig til hinnar hugrökku og hjartastóru söguhetju sem varð fyrst kvenna á Íslandi til að hafa tekjur af kartöflurækt.

Hér er rakin saga ræktunar á Íslandi, og reyndar víða um heim, með sérstakri áherslu á upphaf kartöfluræktar. Höfundurinn, Hildur Hákonardóttir, hefur ferðast allt frá Suður-Ameríku til Eyrarbakka og kynnt sér hvernig fólk þróaði ræktunaraðferðir. Hún fjallar um mismunandi tegundir og hverjar duga best í mismunandi umhverfi. Með einstökum frumleika og sköpunargleði tengir hún kartöfluræktun íslenskri menningarsögu og fjallar um merka menn og konur sem lögðu hönd á plót í beinni og óbeinni merkingu. Þar má nefna Baldvin Einarsson, Vilhelmínu Lever, Eggert Ólafsson og Elísabetur Englandsdrottningu.

Bókin er allt í senn upplýsandi, skemmtileg og nytsamleg fyrir alla sem hafa áhuga á jarðrækt, matreiðslu og/eða menningarsögu. Í henni er að finna uppskriftir, almennar upplýsingar og lifandi lýsingar af fólki sem mótaði Íslandssöguna. „Hugmyndin kviknaði þegar ég starfaði sem byggðarsafnsforstjóri í safninu sem þá var á Selfossi," rifjar Hildur upp. „Meðal þess sem ég fjallaði um þá voru verðlaun dönsku stjórnarinnar sem veitt voru þeim sem helst sköruðu fram úr í bátasmíðum, túnasléttum og jarðrækt. Þá rann upp fyrir mér að þau pössuðu alls ekki við þá söguímynd sem ég hafði af einberri kúgun. Það sat alltaf í mér."

Hildur sem einnig er höfundur hinnar sívinsælu bókar Ætigarðurinn - handbók grasnytjungsins.Blálandsdrottningin skartar fjölda litmynda ásamt ítarlegum upplýsingum um heimildir.


Vottun:

Engin vottun skráð

Framleiðandi:

 Bókaútgáfan Salka ehf

Grænar síður:

  Bókaútgáfan Salka ehf

Þyngd innihalds:

650 g

Heildarþyngd:

650g

Hæð: 240mm Breidd: 168mm Dýpt: 16mm




2.980 ISK

Innihald:

Pappír

Söluaðilar:

Náttúran.is
Förgun innihalds:
Pappír og umbúðir úr sléttum pappaGóði hirðirinnGrenndargámur - blárGræna tunnanBláa tunnanEndurvinnslutunnan
Förgun umbúða:
Grenndargámur - grænnGræna tunnanEndurvinnslutunnanPlast


til baka

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Fréttir frá: