Nature.is love innkaupa taupoki - Óbleikt

Lífræn EarthPositive® Climate Neutral innkaupa taupoki með áprentaðri grafík af Náttúru-konu í íslenskri náttúru.

Hönnun: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Nature.is
Grafík: Prentuð í 6 litum
Texti: Nature.is love
Litur: Hvítur, óbleiktur
Einfaldur vefnaður: 120g/m2
Kolefnislosun: 90% minni en á sambærilegri framleiðslu.

EarthPositive® er byltingarkennd græn vefnaðarvörulína þar sem kolefnisfótspor framleiðslunnar er í algeru lágmarki.

Hvorki meira né minna en sjö vottanir staðfesta háleit markmið og vel heppnaða útfærslu „minna umhverfisskaðlegrar framleiðslu“ en þekkst hefur hingað til í vefnaðariðnaðinum. 100% lífræn- og siðgæðisvottuð framleiðsla, en ekki síst, framleitt eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku. Framleiðslunni er dreift af kolefnisjöfnuðum vöruhúsum og skrifstofum í London sem nota eingöngu endurnýjanlega græna raforku. EarthPositive® flytur aðeins með skipum landa á milli og notar ekki flugfrakt því þó að skipaflutningar geti ekki talist umhvefisvænir verða mun neikvæðari umhverfisáhrif af völdum flugvéla. Allt er því gert til að framleiðsla, dreifing og öll viðskipti með vöruna valdi sem minnstum umhverfisskaða.

EarthPositive® gefur þér tækifæri á að vera þátttakandi í því að vinna gegn þeim loftslagsvandamálum sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag.

EarthPositive® línan kynnir Carbon Trust vottun en hún staðfestir þá kolefnislosun sem framleiðslan veldur, í þessu tilviki á bómullarfatnaði. Carbon Trust loftslagsvottunin er ein sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

Björgum loftslaginu – þvoum kalt
EarthPositive® vefnaðarvörur má þvo við 30°C, aftur á móti biðjum við notendur EarthPositive® að taka tillit til þess að umhverfisáhrif af mikilli notkun þvottavéla og þurrkara á heimilum getur átt þátt í allt að 80% þeirrar orkunotkunar sem venjulegar vefnaðarvörur hafa í för með sér á líftíma sínum.

Við merkjum okkar vefnaðarvörur BJÖRGUM LOFTSLAGINU – ÞVOUM KALT – HENGJUM UPP til viðbótar við hefðbundar þvottaleiðbeiningar. Við hvetjum líka til þess að notuð séu umhverfisvæn þvottaefni með lágmarks mengandi áhrifum á vatn og að það brotni fljótt niður (sé umhverfismerkt).

Bros - Gjafaver ehf. flytur bolina inn og sér um áprentanir.


Vottun:

vottun: CO2 Carbon Label  vottun: EKO Sustainable Textiles  vottun: Fair Wear Foundation  vottun: Soil Association  vottun: Wind Powered  vottun: Öko-Tex 

Framleiðandi:

 Continental Clothing


Þyngd innihalds:

57 g

Heildarþyngd:

57g

Hæð: 420mm Breidd: 380mm Dýpt: 5mm




1.200 ISK

Innihald:

100% lífræn bómull

Söluaðilar:

Náttúran.is
Förgun innihalds:
Föt og klæði
Förgun umbúða:
Lífrænt heimilssorp


til baka

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Leit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator