Ætigarðurinn - Handbók grasnytjungsins

Höfundur: Hildur Hákonardóttir.

Listakonan Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri allan ársins hring. Hér leiðir hún okkur á vit móður náttúru og sýnir okkur fram á hve ánægjulegt er að lifa í sambýli við hana. Í bókinni eru girnilegar uppskriftir og áhugaverðar frásagnir um lífið, lækningar og hugmyndafræði ræktunar. Ætigarðurinn er gagnlegt uppflettirit en jafnframt skemmtileg saga höfundar sem hefur aflað sér viðamikillar þekkingar á þeirri menningu sem tengist ræktun - bæði á Íslandi og víða um heim.

Umsagnir:

Bók Hildar leiðir okkur í íslenskan ætijurtagarð og bendir okkur á hvað margt það er sem við getum borðað. Skemmtileg og fræðandi bók sem leiðir hugann að því að náttúran er lifandi rétt eins og við.
Hallgrímur Magnússon.

Ætigarðurinn - himneskt kver sem er hafsjór af fróðleik og innblæstri, svo skemmtilega og lifandi skrifað að þegar ég tók mér bókina í hönd þá fór ég þangað ...
Sólveig Eiríksdóttir.

Þetta er yngisleg bók. Hún bæði jarðtengir mann og lyftir manni á andlegt plan. Jafnvel þó maður hafi ekki nokkurn áhuga á garðyrkju eða hollustu er þetta dásamleg lesning. Hún hjálpar manni að vera manneskja.
Unnur Jökulsdóttir.


Vottun:

Engin vottun skráð

Framleiðandi:

 Bókaútgáfan Salka ehf

Grænar síður:

  Bókaútgáfan Salka ehf

Þyngd innihalds:

537 g

Heildarþyngd:

537g

Hæð: 240mm Breidd: 167mm Dýpt: 14mm




2.500 ISK

Innihald:

Pappír

Söluaðilar:

Náttúran.is
Förgun innihalds:
Pappír og umbúðir úr sléttum pappaGóði hirðirinnGrenndargámur - blárGræna tunnanBláa tunnanEndurvinnslutunnan
Förgun umbúða:
Engar umbúðir


til baka

1 Einar - mánudagur 27. ágúst, 2007 klukkan 14:17:29

Þetta er feykilega skemmtileg bók aflestrar. Hildur er jafnskemmtileg á prenti sem í eigin persónu. Maður lærir að nálgast gróðurinn á einfaldan og einlægan hátt.

2 Ásta - föstudagur 31. ágúst, 2007 klukkan 14:33:32

Ég gluggaði í þessa bók til að athuga með sultuuppskrift, en endaði á því að lesa hana spjaldanna á milli, því hún er stútfull af fróðleik og frjóum hugmyndum.

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.
Náttúran.is leitast við að hafa allar upplýsingar réttar og athugasemdir eru vel þegnar.
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Leit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator