Bækur
Bækur eru yndislegt verkfæri, hvort heldur sem er til afþreyingar, til að skilja heiminn sem við lifum í eða menntunar. Menningar- og menntunarstig þjóða er oft metið í leskunnáttu og bókarlestri. Íslendingar eru menningarþjóð sem leggur mikið upp úr lestri og kaupir mikið af bókum sem eftir lestur verða því miður fangar bókahilla í ár eða áratugi. Hvernig væri að frelsa bækurnar úr bókahillunum. Þegar þú ert búinn að lesa ákveðna bók, hvernig væri að skrifa fremst í hana hver þú ert og hvenær þú last hana. Skilja hana síðan eftir á almennum stað, eins og strætó eða kaffihúsi svo að aðrir geti notið hennar. Bókin verður marglesin öðrum til ánægju. Frá umhverfissjónarmiði fer minni pappír í að prenta fáar bækur sem eru marglesnar í stað margra bóka sem eru lesnar af fáum. Einnig má gefa bækur til vina eða koma til fornsölu. Bækur eru pappírsfrekar og til pappírsframleiðslu þarf skóglendi. En pappír í bókum er minniháttar mál miðað við öll dagblöð sem eru keypt og hent næsta dag. Á löngum tíma eyðist pappírinn og brotnar niður. Endurunninn pappír er notaður í grófari pappírsframleiðslu s.s. klósettpappír. Sýrustig pappírs er eitt af því sem að umhverfismerkingar taka viðmið af. Svanurinn umhverfismerki Norrænu Ráðherranefndarinnar tekur til framleiðsluferlis og umhverfisáhrifa pappírs.
Beinar aðgerðir og borgaraleg óhlýðni
Höfundur: Sigurður Harðarson.
Útgefandi: Andspyrna útgáfa. Uppsetning: Sigvaldi Ástríðarson.
Prentað af Prentlausnum á endurunnin pappír ...
nánar
Blálandsdrottningin og fólkið sem ræktaði kartöflurnar
Höfundur: Hildur Hákonardóttir.nánar
Heilsubók konunnar - alfræðirit um líkama og sál
Ritstjóri: Dr. Lesley Hickin.
Heilsubók konunnar geymir víðtækan fróðleik um allt sem viðkemur líkama og ...
nánar
Lífsreglurnar fjórar - Viskubók Tolteka
Höfundur: Don Miguel Ruiz.
Ráðum við hvernig við lifum - eða lifum við eins og samfélagið ...
nánar
Með veislu í farangrinum
Matreiðslukver ferðamannsins.
Höfundar: Ingibjörg Guðrún Guðjónsdóttir Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir.
Nýstárlegt uppskriftakver fyrir ferðaglaða sælkera sem ...
nánar
Uppeldi fyrir umhverfið
Höfundur: Susannah Marriott.Þýðing: Gunnar Sigvaldason og Katrín Jakobsdóttir.
Bókin heitir á frummálinu Green babycare ...
nánar
Vatnið og hin duldu skilaboð þess
Höfundur: Masaru Emoto.
Getur vatn skynjað það sem við segjum og gerum?
Eftir áralangar rannsóknir ...
nánar
Við öll - Íslenskt velferðasamfélag á tímamótum
Höfundur: Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon er þekktur fyrir litríkar ræður og vasklega framgöngu ...
nánar
Ætigarðurinn - Handbók grasnytjungsins
Höfundur: Hildur Hákonardóttir.
Listakonan Hildur Hákonardóttir sinnir gróðri allan ársins hring. Hér leiðir hún okkur ...
nánar
Rit Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal
Hér birtast fjögur af ritum séra Björns Halldórssonar (f. 1724 d. 1794):
- Korte beretninger, komu ...
nánar
Grænt Reykjavíkurkort
Prentútgáfa af Græna Reykjavíkurkortinu.
Stærð: 100 x 70 cm, brotið í 24 síður.
Framhlið: Grænt ...
nánar
Náttúruspil - 52 góð ráð fyrir þig og umhverfið
Góðu ráðin eiga að minna okkur á hvernig hægt er að bæta umgengni okkar við ...
nánar
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal






Ef bendill er settur yfir myndina birtast upplýsingar.










