Toyota fær ISO 14001 vottun

Toyota á Íslandi er áttunda íslenska fyrirtækið til að hljóta umhverfisvottun skv. alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Sjá lista yfir þau fyrirtæki sem hlotið hafa ISO 14001 hér á Grænum síðum. Toyota hefur verið einn fremstur bílaframleiðanda í heiminum til að hanna umhverfsivænni bíla og hefur fyrirtækið svo sannarlega verið í framvarðasveit á þeim vettvangi um árabil. ISO 14001 umhverfisstaðallinn er þó ekki sjálfvirkt tengdur umhverfisstefnu mmóðurfyrirtækisins heldur þarf hvert umboð í hverju landi að standast kröfur þar sem settar eru í umhverfisstjórnunarkerfinu ISO 14001.
ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðallinn er til að hjálpa fyrirtækjum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum, uppfylla gildandi umhverfisreglugerðir og starfsleyfisákvæði.
ISO 14001 leggur áherslu á það hvernig varan er framleidd en ekki vöruna sjálfa. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins er framkvæmd af hlutlausum þriðja aðila.
Birt:
July 4, 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Toyota fær ISO 14001 vottun“, Náttúran.is: July 4, 2007 URL: http://www.natturan.is/d/2007/07/04/toyota-fr-iso-14001-vottun/ [Skoðað:Dec. 1, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: Jan. 16, 2008