Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn - ATH! Breytt tímasetning
Mótmælunum sem áttu að vera á Austurvelli laugardaginn 14. nóvember kl. 15:00 hefur verið frestað vegna árásana í París en verða nú haldin mánudaginn 16. nóvember kl. 17:00.
Við mótmælum öllum áætlunum um virkjanir, uppistöðulón, vegi og raflínur á hálendi Íslands, eins stærsta ósnorta landsvæðis af mönnum sunnan heimskautabaugs.
Við mótmælum stóriðju og öðrum vanhugsuðum skammtímalausnum í orkuframleiðslu og atvinnubúskap.
Náttúra íslands er ekki eign tímabundinna handhafa yfirvalds. Gerum miðhálendi Íslands að þjóðgarði og stöndum vörð um náttúruarf og menningu okkar!
Verndum hálendið fyrir valdhöfum í leit að skyndigróða á kostnað komandi kynslóða. Hlúum að náttúrunni og frekari uppbyggingu í kringum ferðamennsku, sem er okkar helsti atvinnubúskapur í dag.
Það er kominn tími til að virkja sköpunarkraft okkar!
-
Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn
- Location
- Austurvöllur
- Start
- Monday 16. November 2015 17:00
- End
- Monday 16. November 2015 18:00
Tengdir viðburðir
Birt:
Tilvitnun:
Ungir umhverfissinnar „Verndum hálendið - Virkjum sköpunarkraftinn - ATH! Breytt tímasetning“, Náttúran.is: Nov. 15, 2015 URL: http://www.natturan.is/d/2015/11/10/verndum-halendid-virkjum-skopunarkraftinn/ [Skoðað:Dec. 4, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: Nov. 10, 2015
breytt: Nov. 15, 2015