Trjálfarnir heimsækja Sorpu
Sögumiðlun hefur hannað ýmiskonar fræðsluefni fyrir Sorpu en nú síðast samstæðuspil sem ber heitið „Trjálfarnir heimsækja SORPU“ og fá nemendur leik- og grunnskóla það afhent í lok vettvangsferða til fyrirtækisins.
Söguhetjurnar eru Trjálfarnir Reynir Víðir Lyngdal og Börkur Birkir en þeir birtust fyrst í Stundinni okkar jólin 2006. Þeir heimsækja starfsstöðvar SORPU og fræðast um ýmislegt sem tengist rusli, flokkun og endurvinnslu og miðla svo fróðleiknum á sinn skemmtilega hátt til þeirra sem spila.
Myndin er af nýja samstæðuspilinu um Trjálfana.
Birt:
Feb. 12, 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Trjálfarnir heimsækja Sorpu“, Náttúran.is: Feb. 12, 2009 URL: http://www.natturan.is/d/2009/02/12/trjalfarnir-heimsaekja-sorpu/ [Skoðað:Nov. 30, 2023]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.