Náttúruverndarsamtök Íslands fagna yfirlýsingu iðnaðarráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, í hádegisfréttum RÚV þess efnis að friðlýsa beri Þjórsárver í heild sinni en ekki bara „hið sérstaka votlendi veranna.” líkt og kveður á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.

Yfirlýsing Össurar er jafnframt viðurkenning hans á því að markmið Fagra Íslands um að „Stækka friðlandið í Þjórsárverum í samræmi við tillögu Umhverfisstofnunar í samráði við heimamenn.” náði ekki fram að ganga í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.

Náttúruverndarsamtök Íslands telja einboðið að iðnaðarráðherra og/eða umhverfisráðherra leggi fram á Alþingi strax á haustþingi frumvarp eða þingsályktun um friðlýsingu Þjórsárvera í heild sinni. Reynir þá á hvort Sjálfstæðisflokkurinn er enn við sama heygarðshornið í náttúruverndarmálum.
Birt:
July 14, 2008
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „NSÍ fagna yfirlýsingu iðnaðarráðherra um algera verndun Þjórsárvera “, Náttúran.is: July 14, 2008 URL: http://www.natturan.is/d/2008/07/14/nsi-fagna-yfirlysingu-ionaoarraoherra-um-algera-ve/ [Skoðað:Dec. 4, 2023]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Messages: